![]() |
||||||||||||||||||||||||
|
Velkomin á vefsvæði Páls Guðmundssonar listamanns á HúsafeliÁ síðunni er að finna fróðleik um Pál á Húsafelli, verk hans, feril, Þrátt fyrir ungan aldur er Páll fyrir löngu þjóðkunnur sökum fjölbreytni í listsköpun, einlægni og frumleika. Til að lýsa í upphafi persónunni og verkum hans er ef til vill rétt að drepa niður í gamlan blaðsnepil frá vini hans, rithöfundinum Thor Vilhjálmssyni, þar sem hann skrifar Páli m.a. á þessa leið: "Að ganga með þér um ríki þitt, í fjallsal, í giljum og gljúfrum, og lesa úr grjóti, sjá ísandana bærast þar sem þeir hanga af bergsnös; undir leikur hvítnandi lækur gegnum bólstrótt skæni íss... Ævintýri lands í goðorði þínu sem þú erfðir frá ættföður þínum þeim göldrótta klerki séra Snorra. Sjá þig taka kvíahelluna einsog ekkert sé, líktog til að kenna mér tökin; sem hefur um langan aldur verið prófsteinn kraftajötna. En þú ferð nett að því, og gengur með hana forskrifaðan spöl. Lest grófar ásjónur trölla og vætta úr björgum og hömrum, eða andlit alþýðu, jöfra og gyðja, og talar við steininn fyrst, áður en þú gefur honum mál svo aðrir megi sjá og heyra; og færir líka á dúka eða blöð með margvíslegum hætti og ýmsum, og þannig gæti ég haldið áfram tilskrifi; en læt í bili duga; og óska heilla." |
|||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||